Afhendingaferli

Afhendingarferli

Afhendingarferli rafrænna gagnasafna skiptist í nokkra verkþætti. Ferlið byggir á samspili laga og reglna og er hverjum verkþætti ætlað að tryggja hlítingu þeirra reglna sem við á hverju sinni. Viðkomandi héraðsskjalasafn og MHR stýra ferlinu í samstarfi við viðkomandi sveitarfélag/skjalamyndara og hugbúnaðarframleiðanda.


Tilkynning og ósk um skil á gagnasafni

Skylt er að tilkynna rafræn gagnasöfn sem notuð eru til að mynda, safna, skrá og varðveita skjöl og önnur gögn sem geyma upplýsingar og hafa orðið til, borist eða verið viðhaldið við starfsemi afhendingarskyldra aðila sbr. 1. gr. reglna nr. 877/2020. Með rafrænu gagnasafni er átt við hverskonar rafræn kerfi fyrir skipulega myndun og varðveislu gagna, þ.m.t. rafrænna skjala hjá afhendingarskyldum aðilum.

Rafrænt gagnasafnþarf að tilkynna þremur mánuðum áður en rafrænt gagnasafn er tekið í notkun sbr. 3. gr. reglna nr. 877/2020. Héraðsskjalasafn getur innan sex mánaða frá tilkynningu farið fram á að gerðar séu breytingar á uppbyggingu gagnasafnsins til að tryggja að hægt sé að kalla fram og varðveita gögn úr kerfinu til langframa. Ef breytingar eru gerðar á gagnasafninu sem hafa áhrif á leitaraðferðir, skráningu eða varðveislu þarf að tilkynna um þær breytingar.

Sé kerfi tekið í notkun en ekki tilkynnt og þar af leiðandi ekki samþykkt af héraðsskjalasafni getur héraðsskjalasafnið farið þess á leit við hinn afhendingarkylda aðila að beytingar séu gerðar á uppbyggingu kerfisins til þess að tryggja að hægt sé að kalla fram og varðveita gögn úr kerfinu.

Samkvæmt 14. og 15. gr. laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn skulu afhendingarskyldir aðilar afhenda skjöl sín á opinbert skjalasafn. Sveitarfélög sem eiga og reka héraðsskjalasafn skulu afhenda skjöl sín á það héraðsskjalasafn. Héraðsskjalasafninu ber skv. 13. gr. ofangreindra laga að taka við, heimta skjöl og gera þau aðgengileg. Með vísan til ofangreinds, þ.e. afhendingarskyldu opinberra skjalamyndara og vörsluskyldu opinberra skjalasafna munu viðkomandi héraðsskjalasöfn taka á móti tilkynningum á eldri rafrænum gagnasöfnum og eins á móti gagnasöfnunum sjálfum í samræmi við gildandi reglur þar um.