MHR (Miðstöð héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu)
Miðstöð héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu er samstarfsverkefni héraðsskjalasafnanna. MHR er ætlað að einfalda skil á rafrænum gagnasöfnum sveitarfélaga, styðja við hlítingu reglna, auðvelda ráðgjöf og samræmingu verkferla. Hlutverk miðstöðvarinnar er að stýra verkefninu og tryggja að rafræn gagnasöfn sveitarfélaga og einkaaðila séu varðveitt og gerð aðgengileg.
Framkvæmdastjórn MHR
- Stefán Bogi Sveinsson framkvæmdastjóri
- Sólborg Una Pálsdóttir ritari
- Þorsteinn Tryggvi Másson gjaldkeri
Aðstoð við stafræna umbreytingu
Miðstöðin tryggir að hvert héraðsskjalasafn geti tekið við tilkynningum um rafræn gagnasöfn, tekið á móti rafrænum vörsluútgáfum og veitt aðgengi að rafrænum gögnum sveitarfélaga.
Byggja upp sérþekkingu
Eitt af meginmarkmiðum MHR er að byggja upp nauðsynlega fagþekkingu starfsfólks héraðsskjalasafna á langtímavörslu rafrænna gagna í samræmi við gildandi lög, reglur og staðla sem stuðst er við.
Sameiginlegt móttökuver lækkar kostnað
Héraðsskjalasöfnin nýta sameiginlega stærðarhagkvæmni vegna móttöku og prófana á samskonar gagnasöfnum. Sameiginlegt móttökuver og jafnt aðgengi allra að tækniráðgjöf lækkar kostnað.
Hýsing
Hýsing tekur mið af kröfum einstakra héraðsskjalasafna en fylgir um leið kröfum ISO 27001. Hvert héraðsskjalasafn er ábyrgt fyrir hýsingu á afhendingarskyldum gagnasöfnum þeirra sveitarfélaga sem það reka. Þá er horft til ýmissa annarra þátta vegna gagnaöryggismála.
NEA (Netværket Elektronisk arkivering) er samstarfsverkefni 32 sveitarfélaga í Danmörku
NEA er samstarfsverkefni 32 sveitarfélaga í Danmörku. NEA er hluti af Borgarskjalasafni Kaupmannahafnar (Københavns Stadsarkiv) og er starfsfólk NEA starfsfólks Borgarskjalasafns Kaupmannahafnar. Starfsfólk NEA hefur áratuga reynslu af móttöku, prófunum og afgreiðslu úr rafrænum gagnasöfnum sveitarfélaga.
Samstarf NEA og MHR
Markmið NEA er að tryggja rafrænt skjalahald, vörslu rafrænna gagna og aðgengi að rafrænum skjalasöfnum og nýta samstarfsvettvanginn til að byggja upp sérþekkingu hjá hverju skjalasafni. Héraðsskjalasöfnin hafa undirritað samning við NEA en með samningnum fæst einnig aðgangur að verkfærakistu NEA s.s. aðgangur að hugbúnaði til að halda utan um kortlagningu rafrænna gagnasafna og prófanir á vörsluúgáfum.
Sama regluverk
Regluverk vegna tilkynninga og móttöku á rafrænum gagnasöfnum opinberra aðila á Íslandi fylgir reglusetningu Danska ríkisskjalasafnsins (Statens Arkiver) og af þeim sökum er skynsamlegt að vera í samstarfi við dönsk sveitarfélög um kortlagningu, tilkynningar og tilhögun skila á rafrænum gagnasöfnum.
Ráðgjöf NEA
NEA skipuleggur fundi, námskeið og leiðbeinir starfsfólki vegna þeirra fjölmörgu verkefna sem tengjast rafrænni skjalavörslu, allt frá kortlagningu rafrænna gagnasafna, fyrirlestra um lagaumhverfi, tilhögun afhendinga, hvernig vörslu er best háttað, uppbygging gagnagrunna eða uppsetningu á rafrænni/stafrænni gagnageymslu.
Klasasamstarf héraðsskjalasafna
Héraðsskjalasöfnunum er skipt í þrjá klasa, þ.e. Suður- og suðvesturklasa, Vestur- og norðvesturklasa og Norðaustur- og austurklasa. Tvö söfn innan hvers klasa skuldbinda sig til að vera leiðandi í samstarfi hvers klasa og veita öðrum héraðsskjalasöfnum leiðbeiningar og ráðgjöf um móttöku og skil á rafrænum gagnasöfnum eftir því sem við á.
Hlutverk hvers klasa er fyrst og fremst að miðla upplýsingum, einfalda og stytta boðleiðir, samræma verklag og nálgun og deila út verkefnum í samræmi við áætlanir MHR og stýrihóps MHR. Stýrihópurinn leiðir samstarfið en tekur ekki bindandi ákvarðanir fyrir hönd einstakra safna og/eða sveitarfélaga.
Suður- og suðvesturklasi
- Héraðsskjalasafn Austur-Skaftfellinga
- Héraðsskjalasafn Árnesinga
- Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar
- Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga
- Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja
Vestur- og Norðvesturklasi
- Héraðsskjalasafn Akraness
- Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu
- Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar
- Héraðsskjalasafn Vestur-Húnavatnssýslu
- Héraðsskjalasafn Skagafjarðar
Norðaustur- og austurklasi
- Héraðsskjalasafnið á Akureyri
- Héraðsskjalasafn Austurlands
- Héraðsskjalasafn Fjallabyggðar
- Héraðsskjalasafn Svarfdæla
- Héraðsskjalasafn Þingeyinga
Stýrihópur
- Birna Mjöll Sigurðardóttir héraðsskjalavörður
- Erla Dís Sigurjónsdóttir héraðsskjalavörður
- Lára Ágústa Ólafsdóttir héraðsskjalavörður
- Sólborg Una Pálsdóttir héraðsskjalavörður
- Stefán Bogi Sveinsson héraðsskjalavörður
- Þorsteinn Tryggvi Másson héraðsskjalavörður
Héraðsskjalasöfn á Íslandi eru átján. Þau starfa skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og reglugerð nr. 283/1994 um héraðsskjalasöfn. Þau eru sjálfstæðar skjalavörslustofnanir á vegum sveitarfélaga og lúta faglegu eftirliti Þjóðskjalasafns Íslands.
Hlutverk héraðsskjalasafna er í meginatriðum fjórþætt, þ.e. viðtaka skjala afhendingarskyldra aðila og einkaaðila, skráning og aðgengi að safngögnum bæði á rafrænum formi og á pappír, eftirlit og ráðgjöf með skjalahaldi afhendingarskyldra aðila og miðlun og rannsóknir á safngögnum.
- Héraðsskjalasafn Akraness
- Héraðsskjalasafnið á Akureyri
- Héraðsskjalasafn Austurlands
- Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu
- Héraðsskjalasafn Austur-Skaftafellssýslu
- Héraðsskjalasafn Árnesinga
- Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar
- Héraðsskjalasafn Dalasýslu
- Héraðsskjalasafn Fjallabyggðar
- Héraðsskjalasafn Ísafjarðar
- Héraðsskjalasafn Kópavogs
- Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar
- Héraðsskjalasafn Norðfjarðar
- Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga
- Héraðsskjalasafn Skagafjarðar
- Héraðsskjalasafn Svarfdæla
- Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja
- Héraðsskjalasafn Vestur Húnavatnssýslu
- Héraðsskjalasafn Þingeyinga