Tilkynningar

Tilkynningar rafrænna gagnasafna

MHR tekur á móti tilkynningum um rafræn gagnasöfn afhendingarskyldra aðila á sveitarstjórnarstiginu, vinnur með héraðsskjalasöfnunum að samþykkt á rafrænum gagnasöfnum og aðstoðar afhendingarskylda aðila við að tilkynna rafræn gagnasöfn.


Skylt er að tilkynna rafræn gagnasöfn sem notuð eru til að mynda, safna, skrá og varðveita skjöl og önnur gögn sem geyma upplýsingar og hafa orðið til, borist eða verið viðhaldið við starfsemi afhendingarskyldra aðila sbr. 1. gr. reglna nr. 877/2020. Með rafrænu gagnasafni er átt við hverskonar rafræn kerfi fyrir skipulega myndun og varðveislu gagna, þ.m.t. rafrænna skjala hjá afhendingarskyldum aðilum.

Rafræn einkaskjalasöfn þarf ekki að tilkynna en ferli við afhendingu, skil og móttöku rafrænna einkaskjalasafna fylgir að öðru leiti sama verklagi.

Rafræn gagnasöfn afhendingarskyldra aðila þarf að tilkynna þremur mánuðum áður en rafrænt gagnasafn er tekið í notkun sbr. 3. gr. reglna nr. 877/2020. Héraðsskjalasafn getur innan sex mánaða frá tilkynningu farið fram á að gerðar séu breytingar á uppbyggingu gagnasafnsins til að tryggja að hægt sé að kalla fram og varðveita gögn úr kerfinu til langframa. Ef breytingar eru gerðar á gagnasafninu sem hafa áhrif á leitaraðferðir, skráningu eða varðveislu þarf að tilkynna um þær breytingar.

Sé kerfi tekið í notkun en ekki tilkynnt og þar af leiðandi ekki samþykkt af héraðsskjalasafni getur héraðsskjalasafnið farið fram á að afhendingarskyldur aðili geri nauðsynlegar breytingar á uppbyggingu og starfsemi gagnasafnsins til að tryggja að hægt sé að kalla fram og varðveita gögn úr kerfinu til langframa.

Öll gagnasöfn þarf að tilkynna. Tilkynningin er undanfari varðveislumats þar sem héraðsskjalasöfnin, MHR og afhendingarskyldur aðili meta hvort gagnasafnið skuli varðveitt til langframa sbr. 8. gr. reglna nr. 877/2020. En óheimilt er að eyða eða farga nokkru skjali í rafrænu gagnasafni nema það sé gert á grundvelli samþykktar þjóðskjalavarðar, reglna eða skv. lögum um opinber skjalasöfn.

Tilkynning á rafrænu gagnasafni skal vera á eyðublaði frá héraðsskjalasöfnunum og MHR sbr. 7. gr. reglna nr. 877/2020. Tæknileg gögn, þ.e. lýsing á töflum og dálkum, einindavenslarit ásamt skjölum sem sýna að unnt sé að mynda vörsluútgáfu á venslaformi auk notendahandbókar gagnakerfisins á að fylgja með tilkynningu. Þá skal upplýsa um þau skráarsnið sem varðveitt eru í gagnasafninu.



Kortlagning rafrænna gagnasafna

Mikilvægt er að kortleggja rafræn gagnasöfn sveitarfélaga og fá þannig yfirsýn yfir fjölda gagnasafna, mismunandi tegundir s.s. mála- og skráarkerfi, landupplýsingakerfi, gagnagrunna og skráarkerfi. Þessi yfirlitsgerð gerir héraðsskjalasöfnunum og MHR kleift að forgangsraða verkefnum, einfalda verklag vegna tilkynninga og varðveislumats o.fl. Samvinna héraðsskjalasafnanna tryggir ákveðna samfellu hvað varðar varðveislumat, tilkynningar og þá móttöku og vörslu á rafrænum gagnasöfnum sveitarfélaga.


Kortlagning rafrænna gagnasafna er undanfari tilkynninga og skila á gagnasöfnum sveitarfélaga og stofnanna þeirra.

Í kortlagning rafrænna gagnasafna felst m.a. að safna upplýsingum um heiti og tegund gagnasafns. Hve lengi gagnasafnið hefur verið í notkun og í hverju notkun þess er fólgin.

Með kortlagning rafrænna gagnasafna er einnig hægt að gera grein fyrir mikilvægi þeirra upplýsinga sem skráðar eru í gagnasafnið – með hvaða hætti upplýsingarnar eru skráðar, leitarbærar og með hvaða hætti þær eru nýttar og tryggja þannig faglegt varðveislumat á gagnasöfnum.

Með kortlagningu rafrænna gagnasafna er að auki aflað upplýsinga um tengd kerfi/gagnasöfn og þá hvort viðkomandi gagnasafn sé hluti af skjalasafni viðkomandi sveitarfélags eða stofnunar eða hvort það sé sameiginlegt gagnasafn sem rekið er af þriðja aðila, t.d. þjóðskrá eða gagnagrunnur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.



Listi yfir rafræn gagnasöfn

Hér fylgir listi yfir rafræn gagnasöfn sem búið er að kortleggja hjá sveitarfélögum og stofnunum þeirra. Þessi listi tekur breytingum í samræmi við þau gagnasöfn sem sveitarfélögin nota hverju sinni auk þess sem eldri gagnasöfn er að finna á listanum.

Listinn tilgreinir gagnasöfnin, þ.e. heiti, tilgang, notkun og varðveislumat sem hægt er að nýta til stuðnings af hverju héraðsskjalasafni þegar horft er til varðveislu eða eyðingar á gagnasöfnum.


SkjalamyndariSveitarfélagHeiti gagnasafnsTegundTilgangurVarðveisla
SveitarstjórnarskrifstofaSveitarfélagið Árborg***Mála- og skjalakerfiMálasafn og fylgigögn***